Added

some more pictures to my albums. Enjoy!


Mér leiðist

að vera með kvef. Treysti mér ekki í vinnu í dag og búin að snýta mér í heila klósettrúllu. Oj bara. En fyrir þá sem hafa gaman af því að skoða myndir, þá er ég búin að bæta í myndaalbúmin. Balász og Kitty létu mig fá myndir frá Vestmannaeyjum síðan í vor og þá datt mér í hug að bæta líka í fleiri albúm. Möppurnar sem heita England 2008 og Landbúnaðarsýning hafa líka fengið viðbót. Njótið vel.

Afmæli

Sonurinn orðinn 14 ára!!! Ótrúlegt! Og ég ætla ekki að nefna hvað ég er orðin gömul. Mér finnst samt að ég sé yngri núna en fyrir tuttugu árum. Veit ekki af hverju. Um jólin lagði drengurinn undir sig hljómflutningstæki heimilisins - og flutti inní sitt herbergi. Gamli geislapilarinn minn var hættur að virka hjá mér, svo honum sýndist að ég hefði engin not fyrir þetta dót lengur. Brá þá svo við að allt virkaði vel undir hans stjórn. Sá ég þá mitt óvænna og fjárfesti í glænýjum heimabíógræjum á útsölu í Elko. Auðvitað jafnast þær ekki á við gamla dótið, enda tímdi ég ekki að eyða miklum peningum í þetta, vitandi að eldgamli magnarinn minn stendur vel fyrir sínu og hægt að fá ágæta hátalara á 300 krónur á notaða-dóts-markaðnum. Vildi það mér til happs þegar heim kom að nýju græjurnar skörtuðu bláum ljósum - einmitt í stíl við tölvu unglingsins og allt annað í hans herbergi!!! Vildi hann nú ólmur skipta og skila gamla dótinu mínu! Ég þráaðist við í þrjá daga, og lét hann suða, en í morgun lét ég eftir honum að skipta, (enda ekki snjallt að bíða þangað til hann áttaði sig á því að gömlu græjurnar væru í raun og veru betri!).  Svo nú hef ég endurheimt græjurnar mínar, bætt við tveimur notaða-dóts-hátölurum, og geislaspilarinn lætur vel að stjórn, feginn að fá að spila almennilega tónlist í stað gaddavírsrokks - held ég. Hann virðist allavega hafa haft gott af því að nötra af hávaða í tvær vikur! Og allir eru ánægðir. Á morgun verður svo árlegt kökupartí.

Gleðilegt ár! - Happy New Year!

We played tourists the last few days, entertaining Diane - I hope.  First we drove west, starting with old farm Keldur...:

Keldur

 

 

 

 

 

 

... and then Leirubakki Hekla exhibition, ending with shopping in Selfoss.

The next day we went east. It was a beautiful, sunny day at Eyjafjöll...

Undir Eyjafjöllum

 

 

 

...as you can see here... 

 

 

...but a few minutes later, when entering Vík, it looked like this:

Vík - séð að ofan

 

 

 

 

 

 

And the most unexpected things impress tourists:

Black sand!Svartur sandur - og snjór

 

 

 

 

 

 

She had never seen black sand on a beach!!!

(Of course to me it looked more white with snow)

ReynisdrangarSalut at the German memorial

 

 

 

 

 

 

On the other side of the mountain the sun was still shining...

Vík

 

 

but in most directions the view was like this.

 

 

 

I could never understand why tourists wanted to go to Vík, but I guess it is the black sand and bad weather. Being in the tourist business, I needed to know these things. Next time we will go further. On the way back we stopped at the glacier, so that Diane could say that she walked on a glacier and then we visited our friend Annika and got to taste all the delicious cakes and cookies she presented.  Thank you Annika!


Við erum að hugsa

um að vera í Reykjavík um áramótin. Þeir sem óska eftir að hýsa okkur eru beðnir að gefa sig fram! (Við erum þrjú, tvær kerlingar og einn táningur). Hér er mynd af okkur:

Við þrjú

 

 

 

 

 

 

 

 

Þeir sem búa í dældum og kjöllurum þurfa ekki að hafa fyrir því að svara. Við óskum auðvitað eftir því að gista uppi á hól. Þar eð við þekkjum allnokkra hólbúa á Stór-Reykjavíkursvæðinu höfum við góða von um að það heppnist. Ef ekki, þá ökum við bara heim aftur að lokinni flugeldasýningunni. Með fyrirfram þökk.


Merry Christmas!

to you all. Looking forward to meeting Diane tomorrow morning, weather forecast is good, so we will meet at the airport. Markús will be sleeping - of course. Enjoy the pictures below, but unfortunately it doesn't look like this anymore - all the snow is gone.

Gleðileg jól!

Nú reikna ég með að næstum allir vinir mínir yngri en sextugir lesi bloggið mitt - þar af leiðandi sendi ég bara örfá jólakort þetta árið - aðeins þeir sem grunaðir eru um að lesa ekki blogg fengu jólakort - og örfáir allra nánustu að auki.  Hér kemur jólakort ykkar hinna:

Jólatré

Þetta tré stendur í garðinum mínum, sunnan við gróðurhúsið, fleiri svona myndir eru í næstsíðustu færslu, fyrir þá sem vilja hvít jól. Þessi snjór er næstum allur bráðnaður núna, eins og við mátti búast.

Af okkur Markúsi er allt gott að frétta, hann hangir í tölvunni - og ég líka. Ég er með 12 nemendur í tónlist og hægt er að fylgjast með því á öðru bloggi: www.tona.blog.is Svo vinn ég á Hótel Rangá í móttökunni, og það er bara mjög skemmtilegt. Skoðið líka þá heimasíðu: www.hotelranga.is Samyrkjubúskapurinn með Jóni Brúnó gengur vel, nú þurfum við bara að losna við naut í slátrun, svo menn eru hér með hvattir til að snæða meira nautakjöt! Sniðugt t.d. að borða nautasteik um áramótin!

Diane systir Jims kemur í heimsókn nú um jólin, svo það verður mikið fjör. Þangað til hún kemur ætlum við að slaka á og safna orku. Árlegri jólaferð til Reykjavíkur var aflýst vegna veðurs, svo því miður var engum Langagerðisgulrótum dreift fyrir þessi jól, engar frænkur heimsóttar og peningum aðeins eytt í heimahéraði. Allt í stíl við kreppuna.

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ég þakka bloggurum fyrir samfélagið á liðnu ári og öðrum lesendum fyrir heimsóknirnar. Sjáumst í næstu færslu!

Guð blessi ykkur öll!


Ég veit

hvar best er að kaupa jólagjafirnar! Komst að því á síðustu stundu! Það er hjá honum Steinasteina:

www.steinasteinn.is

Hann er með opið til kl. 21:00 í kvöld á Hvolsvelli - veit ekki meir!


Jólafrí - alveg

Það snjóaði dálítið hjá okkur um daginn, og entist í nokkra daga, svo ég náði nokkrum myndum. Laugardaginn 20. janúar var svona umhorfs í garðinum hjá mér:

Gróðurhús og jólatréMatjurtagarðurinn

 

 

 

 

 

 

Ég sópaði af gróðurhúsinu - til öryggis, en trén fengu að svigna og jólaljósin máttu bræða sér leið.

Trén svignuðujólaljós

 

 

 

 

 

 

Ekki snjókarlEkki snjókerling

 

 

 

Sum grenitré þóttust vera eitthvað annað...

 

 

 

 

 

Eldstæðið á kafi

 

 

Eldstæðið á kafi, en Lappi sést vel - ef að er gáð.

 

 

 

 heimreiðin

 

 

Heimreiðin var ævintýraleg.

 

 

 

Allt þakið snjó

 

 

 

 

 

 

Gráni í fríi

 

 

Gráni hvarf næstum alveg.

 

 

 

Við útidyrnar

Við útidyrnar

 

 

Einn daginn var útsýnið frá útidyrunum svona...

...svo kom rigningin...

 

Lappi og Pomac

...og á morgun verður það líkara þessu...

sem var í nóvember - bara ekki eins bjart.

Á þessari mynd er hundur að elta kött, þeir sjást ef að er gáð, annar liggur uppi í tré.

Þeir bíða- og bíða - og svo heldur leikurinn áfram.

 

 

Hér með lýkur þessari gönguferð um garðinn minn. Njótið vel og eigið gleðileg jól!


Jólafrí - að hálfu

Komin í jólafrí frá kennslunni - tveir dagar eftir á Rangánni. Finnst þetta asnalega blogg (síðasta færsla) búið að tróna á toppnum aðeins of lengi. Nær væri að minnast látinna.

Ingibjörg móðursystir mín missti manninn sinn um daginn, hann Valda í Vörum. Ég samhryggist henni og hennar fjölskyldu. Það var afar fjölmenn jarðarför, enda Valdi með eindæmum vinsæll og skemmtilegur maður. Nú frétti ég að Imba væri orðin eitthvað lasin, svo við skulum biðja fyrir henni.

Séra Pétur missti mömmu sína um síðustu helgi. Ég sendi honum og Ástu og öðrum í fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur.

Ég sendi líka samúðarkveðjur til Halldóru Traustadóttur og hennar stórfjölskyldu og systkina vegna fráfalls Trausta Guðjónssonar. Guð veri með ykkur.

Það verða tómleg jól hjá mörgum á komandi hátíð. Megi friður Guðs umvefja ykkur.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband