21.1.2008 | 23:52
Endurtekið efni
Fór í Iðnó í gær að sjá La traviata með Óperu Skagafjarðar - aftur! Alexandra Chernyshova var frábær - aftur. Mikil dæmalaus lukka fyrir okkur Íslendinga að hún skyldi verða svona ástfangin af þessum dáðadreng frá Hofsósi - eða Keflavík - eða hvernigsemþaðnúvar. Hann var líka til sýnis í gær, og lítur bara út fyrir að vera venjulegur gaur... Ég hlakka mikið til að sjá Rigoletto. Það ku verða næsta verkefni hjá þeim.
Það var líka farið í Fíladelfíu í leiðinni. Þar var allt með frekar venjulegum hætti og gott að koma. Eitthvað var rætt um það að sumir sætu heima að horfa á íþróttir. Þeir töpuðu örugglega. Mikið þyrfti ég að vera langt leidd af leiðindum til að sitja og horfa á íþróttir.
Milli atriða var elskulegur fylgdarsveinninn svo höfðinglegur að bjóða mér út að borða á Þrjá frakka, og maturinn þar klikkar aldrei. Allur dagurinn var því eins og sunnudagar gerast bestir, veðrið frábært og allir ánægðir.
Í dag
snerist svo allt um það að reyna að koma fylgdarsveininum heim til sín. Það hafðist fyrir rest að koma honum í Herjólf, en á meðan hann beið var honum boðið uppá líkamsrækt í fjósinu (þ.e.a.s. heymokstur). Væntanlega hefur vistin í Herjólfi ekki verið skemmtileg í kvöld. En Gráni er þiðnaður.
Athugasemdir
Við notum þetta líka í Fljótsdal að láta fólk moka í fjárhúsinu, þá styttist í vistinni upp úr því...
Anna Runólfsdóttir, 22.1.2008 kl. 00:34
Sæl Guðrún. Þetta hefur verið skemmtilegur sunnudagur hjá þér. Ég var að hlusta á Lindina. Ég heyrði þessa ágiskun að sumir væru heima að horfa á handboltann. Hér var ekkert sjónvarp og komst það loksins á í kvöld eftir óveður aðfaranótt sunnudags. Við greinilega misstum ekki af miklu fyrst strákunum okkar gekk illa á móti Risanum frá Frakklandi. Það er gaman að horfa á íþróttir en svona er þetta, misjafn smekkur manna. Í dag var þáttur á Lindinni í beinni kl 13. Þar var verið að ræða við einstakling búsettan á Vopnafirði og var verið að tala um starf Hvítasunnumanna hér. Þátturinn verður endurtekinn á fimmtudaginn kl. 18 og svo um helgina. Ég sendi bloggvinum bréf í kvöld og sagði þeim frá þessu ef þau vildu vita eitthvað um starfið. Ég hafði ekki netfang hjá þér. Mitt netfang er á bak við myndina af mér - höfundi.
Við erum líka með heimasíðu á gospel.is eða http://www.123.is/hvitasunnukirkja/ og þar er netfangið mitt. Hvernig hefur Séra Pétur það. Langt síðan að maður hefur heyrt frá honum. En ég skoða annað slagið Pétrísku orðabókina og skemmti mér vel af þessari vitleysu.
SHALOM
Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.1.2008 kl. 01:52
Sæl aftur. Reyndi að hringja í þig en án árangurs. En þú veist hvar e-mailið mitt er að finna svo þá get ég sent þér bréfið sem bíður hér í tölvunni. Sæl að sinni.
Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.1.2008 kl. 14:14
Rósa! Það er ekki gaman að horfa á íþróttir! Rígfullorðnir menn að eltast við boltatuðru

! Og maður fær ekki að horfa á fréttir í friði fyrir þessari vitleysu!
En ég skal muna að hlusta á Lindina á fimmtudaginn.
Boltabölið - flettu því upp í Orðabók Péturs. Ég hef ekki séð Pétur síðan á síðasta ári, en þá var hann í fullu fjöri. Ég fór í tilhleypingapartí 1. desember og fylgdist með Alla skjóta upp flugeldum, allt með hefðbundnum hætti á þeim bæ.
Guðrún Markúsdóttir, 23.1.2008 kl. 00:11
Sæl er Alli ennþá á lausu? Var það ekki hann sem ég átti að fá?
Pétur er sem sé við gamla heygarðshornið og er ennþá með tilhleypingapartý. Hann var nú ekkert ánægður hvað ég var erfið í taumi.
ég á bók sem var gefin út 1993. það hlýtur að vera til nýrri útgáfur??? Vona að þú verðir ekki fyrir vonbrigðum á fimmtudaginn.
Heyrumst á blogginu.
Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.1.2008 kl. 00:23
Alli hlýtur að vera á lausu ennþá, annars hefði hann ekki fengið inngöngu í samkvæmið - nema til að vaska upp. Þér hefði verið nær að líta á hann!!!
Guðrún Markúsdóttir, 23.1.2008 kl. 01:07
Rósa, Orðabókin þín er löngu úrelt. Þú verður að fá þér nýja og fletta uppá fræfræðingur.
Guðrún Markúsdóttir, 23.1.2008 kl. 01:10
Hæ. Æ nei. ætla frekar að stuða piparinn áfram með sæmd.
Verð að redda mér nýrri bók. Hvað á ég að gera. Er Séra Pétur í símaskránni?
Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.1.2008 kl. 01:14
Hó, ekki síður prívat athugsemdir hjá ykkur frænkur, ég ætla nú samt að gera athugasemd (hljómar ólíkt formlegra en orðskrípið "að kommentera"). Á Kotmóti fyrir, ég held 2 árum, sagði Geir Jón að sólin væri versti óvinur kristninnar á Íslandi: sólskinið tæmdi kirkjur. Kannski íþróttir séu óvinur nr. 2?
Ragnar Kristján Gestsson, 24.1.2008 kl. 20:48
Íþróttir eru óvinur nr. 1, 2, 3, og jafnvel meira!
Guðrún Markúsdóttir, 25.1.2008 kl. 21:48
Við Rósa erum ekki frænkur, við erum systur!
Guðrún Markúsdóttir, 25.1.2008 kl. 21:49
Rósa Aðalsteinsdóttir, 25.1.2008 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.