Færsluflokkur: Bloggar
1.7.2009 | 12:53
Heyrnarskert?
Fór til læknis í dag og kvartaði yfir því að ég væri að verða heyrnarlaus. Ekki var neitt minnst á það að ég færi í heyrnarmælingu - eða ég heyrði það að minnsta kosti ekki. Ég fékk hvítar töflur og leist mér ekki á blikuna þegar ég fór að lesa leiðbeiningarnar. Ég les alltaf leiðbeiningarnar áður en ég tek töflur. Sérstaklega kaflann um aukaverkanir. Hér kemur það sem við má búast. Algengt: Órói, svefntruflanir, sljóleiki... (Finnst mér nú ekki á það bætandi). Sjaldgæft: Ranghugmyndir, rugl, árásarhneigð og ... heilablæðing!!! Þá vitið þið hvað hefur gerst ef ég verð lokuð einhvers staðar inni á næstu dögum! Eða ég gæti hreinlega hrokkið uppaf!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.5.2009 | 20:32
Var að blogga
á hinu blogginu - og setja inn myndir frá nemendatónleikunum mínum. Ægilega montin af þeim. Sjá www.tona.blog.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2009 | 11:22
Tónleikavertíð
Sónötukvöld í söguetrinu síðast liðið mánudagskvöld. Balázs og Kitty voru svo elskuleg að halda tónleika fyrir okkur sveitamenn og það var náttúrlega alveg ótrúlega flott hjá þeim. Í kvöld eru tónleikar Tónsmiðju Suðurlands í Hvolsskóla og þann 23. maí ætla nemendur mínir að halda tónleika í Sögusetrinu og bjóða vinum og vandamönnum. Nóg að gera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.4.2009 | 21:14
Scout í gang
Hann fór í gang í dag eftir langt hlé, International Scout, fyrrum L-579. Vakti það mikla gleði hjá sumum og mikla nostalgíu hjá öðrum. Þetta gerðist við handayfirlagningu Árna á Akri, sem kallaður var til eftir að mynd af samskonar bíl barst í pósti - (Takk Árni og Brian). Ég var stödd í gróðurhúsinu þegar þessi merki atburður gerðist og heyrði gamalkunnugt malið gegnum traktorsdrunurnar. Þustu þá óteljandi minningar fram um ævintýralegar ferðir á þessum bíl - sem var í notkun hér frá því áður en ég fékk bílpróf þangað til um síðustu aldamót. (Meira en 20 ár). Greyið hefur ryðgað þónokkuð við að hanga aðgerðarlaus fyrir utan Sögusetrið í vetur, en ekki var að heyra að neitt annað alvarlegt amaði að honum. Vantar reyndar rafgeymi og sviss, en það eru nú bara smámunir þegar maður er kominn á þennan aldur. Markús sér reyndar fram á ævilangt verkefni við að ryðbæta - en hann gerir þá ekki annað af sér á meðan.
Veit kannski einhver um svissinn? Ég veit nefnilega um lykilinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.3.2009 | 22:38
Nokkrar praktískar leiðbeiningar
dela med mig av.
Först och främst hur skiljer man mellan röda och vita viner:
Lättast skiljer man dessa båda vintyper från varandra om man skvalpar ut en
skvätt på en vit bordduk. Det vin, som lämnar en lila fläck efter sig, är
ett rödvin. Riktiga kännare kan på bara smaken avgöra om vinet är vitt
eller rött. De vita vinerna smakar i regel ättika medan de röda smakar
stämpelfärg. Man kan alltså genom att suga på en vanlig kontorsstämpel och
sedan jämföra smaken med ett vin, konstatera om detta är rött eller
inte.
Till fiskrätter, såsom fiskbullar och matjessill föredrar de flesta vitt
vin, medan man till kötträtter såsom falukorv och sylta bör ta ett rött
vin.
Portvin är ett vin som man serverar i porten. Har man inte någon port, kan
man bjuda på det i trappuppgången eller i hissen.
När man serverar torra viner bör man se till att det inte är tvärdrag eller
att någon av gästerna råkar nysa, ty i sådana fall dammar vinet omkring i
lägenheten.
När man serverar ett torrt vin är det därför lämpligt att ha en dammsugare
i beredskap.
Om man själv ska bära hem sina flaskor från systembolaget gör man klokt i
att köpa ett lättvin, så man inte får för mycket att kånka på.
Till vilt bör man välja något vildvin, medan man till grillat och annat
vidbränt kött serverar brännvin. Renstek sköljer man ner med renat.
Saker som är svåra att säga när du druckit för mycket vin:
- Oöverträffat
- Innovativt
- Preliminärt
- Kvastskaft
Saker som är väldigt svåra att säga när du druckit för mycket vin:
- Västkustskt
- Konstitutionerad
- Substantiera
- Tillvägagångssätt
Saker som är i stort sett omöjliga att säga när du druckit alldeles för
mycket vin:
- Tack, men jag vill inte ha sex ikväll.
- Nej tack, ingen mer sprit för min del.
- Ledsen, du är inte riktigt min typ
Fékk þessar leiðbeiningar frá vinnufélaga sem hefur meira vit á víni en ég. Hann fékk þær hjá systur sinni sem hefur enn meira vit. Mesta vitið er þó að drekka aðallega trönuberjasafa - óáfengan auðvitað! Skál!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2009 | 13:00
A story of an i-pod nano
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2009 | 20:53
Miðvikufrídagur
Annan hvern miðvikudag á ég frí. Fyrri hluta dagsins naut ég þess að vera ein heima (með Lappa) umvafin hlýrri þokunni, setti í þvottavélarnar og æfði á píanó. Komin á sjöttu blaðsíðu í Beethoven sónötunni. (Þá eru bara 23 eftir). Þegar Lappi var orðinn leiður á brotnum hljómum fórum við út í góða veðrið. Dásamlegt vorveður, logn og örlítil súld. Lauk við að bera moldina inní gróðurhús, sáði fáeinum sellerífræjum í bakka og vökvaði. Nú bíðum við bara eftir að arfinn láti blekkjast. Þegar hann kemur upp er hægt að raka yfir og sá gulrótum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2009 | 21:44
Vorið komið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.3.2009 | 22:35
Ekki hætt að blogga!
Hef bara haft svo mikið að gera - og ekkert nema gott um það að segja.
Við fylgdum góðum frænda til grafar í dag, honum Óskari Guðjónssyni. Hann var einn af uppáhaldsfrændunum mínum, alltaf svo hress og skemmtilegur. Auðvitað sérvitringur eins og við hin, en einmitt skemmtilegri fyrir vikið. Ég man aldrei eftir að hafa séð hann í úlpu. Alltaf á stuttermabol og aldrei kalt og alltaf stutt í hláturinn. Ég lét það eftir syni mínum að fara án yfirhafnar í jarðarförina. Alveg viðeigandi. Markús talaði stanslaust um bíla á leiðinni - hvernig hann gæti ekki farið á Mustang í jarðarför, því það yrði svo mikill hávaði. Þá rifjaðist það upp að Óskar átti tvo bíla, annar var Jeppi, en hinn Kirkjubíllinn. Og traktorinn hans hét Stóri Djús. Markús man óljóst eftir Óskari fyrir áfallið, en hann man vel eftir traktorablöðunum sem Óskar gaf honum nokkrum dögum áður en hann veiktist. Ég vildi að Markús og Óskar hefðu átt fleiri stundir saman. Þá hefði ekki skort umræðuefni. Óskar spurði mig alltaf eftir að Markús fæddist hvort hann væri ekki orðinn svolítið óþægur - það þótti honum nefnilega eftirsóknarverðast! Svo hló hann innilega. Óskar kom manni alltaf í gott skap. Svo kom áfallið sem gerði hann að gamalmenni allt of snemma, en nú er hann örugglega farinn að plægja í himnaríki. Blessuð sé minning Óskars frænda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)